Gaglegt efni


  • Frístund
  • Lestrarstefnan

Gott að hafa í huga

  • Farsæld barna

    Börn og foreldrar sem á þurfa að halda eiga að hafa aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Samþætt þjónustu í þágu farsældar barns er skipulögð og samfelld og hefur það markmið að skapa heildarsýn og ramma um þau þjónustukerfi sem skipta mestu máli fyrir farsæld barna.



  • Tengiliðir farsældar barna

    Öll börn og foreldrar skulu hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns eftir því sem þörf krefur. Hlutverk tengiliðar er fyrst og fremst að veita upplýsingar, aðstoða foreldra og barn og styðja við samþættingu á fyrsta stigi í samræmi við óskir foreldra og/eða barns. Foreldrar og börn geta leitað sjálf beint til tengiliðar eða sent beiðni í gegnum Þjónustugátt Sveitarfélagsins Hornafjarðar. 


    Tengiiður farsældar í Hofgarði er skólastjóri á hverjum tíma.

  • Óveður

    Sett verður tilkynning á heimasíðu undir: ,,tilkynningar" ef skóla er frestað eða fellur niður vegna veðurs . Ásamt því að setja póst inn á FB upplýsingasíðu og senda tilkynningu í gegnum Infomentor kerfið.


    Hér eru almennar upplýsingar sem skólar vinna eftir:


    Viðbrögð í grunnskólum þegar tvísýnt er um færð og veður


    1.       Meginreglan er sú að leik- og grunnskólar eru opnir nema lögregla gefi út tilmæli um að fólk sé ekki á ferli. 


    2.      Ef skólahald fellur niður þá sendir skólinn tilkynningu til foreldra í gegnum Mentor.


    3.       Öllum skólum ber að setja tilkynningu á heimasíðu í þeim tilfellum sem tvísýnt er með veður og færð eða þegar skólahald er fellt niður. Einnig skulu skólar senda út póst í Mentor með sömu tilkynningu.


    4.       Við tvísýnar aðstæður þarf að meta hvort akstur skólabíls er öruggur.


    Í  Hofgarði eru það skólabílstjóri og skólastjóri sem taka ákvörðun um akstur. Skólastjóri er alltaf ábyrgur. Tilkynning er send í gegnum Mentor og birt á fb síðu skólans. Foreldrar þurfa að fylgjast með.


    Reynt er að senda tilkynningu ekki seinna en 07.50- 08.00 að morgni fyrir Akstur í Hofgarð.


    Fyrir akstur með unglingadeild á Hala hefur skólabílstjóri samband, akstur frá Hala til Hafnar hefur áhrif á akstur Freysnes-Hanappavellir-Hali.




  • Mötuneyti

    Skólinn leggur áherslu á að nemendur neyti hollrar og næringaríkrar fæðu. Í skólanum er rekið mötuneyti fyrir nemendur og starfsfólk.


    10.00 Ávaxtastund

    12.00 Hádegismatur

    15.00 Síðdegishressing 


Myndataka er óheimil í skólanum nema með sérstöku leyfi. Síminn á aldrei að trufla kennslustund og á að vera geymdur í skáp nemenda eða heima.



Símareglur


Markmið starfsmanna-stefnunnar er að sjá til þess að skólinn sé aðlaðandi vinnustaður þar sem þróast fagþekking, verkkunnátta og mikill vilji til þess að þjónusta nemendur og foreldra.

Starfsfólk