Um skólann

Leik- og grunnskólinn Hofgarði


Sími:

Netfang: hofgardur@hornafjordur.is

Helstu upplýsingar


Skólastjóri er Áróra Gústafsdóttir


Deildarstjóri leikskóla  og staðgengill skólastjóra Lovísa Fanney Árnadóttir


Umsjón með skólahúsnæði hefur húsvörður Markús Þór Þorsteinsson


Skólahúsnæði og skrifstofa skólans er opin frá kl.08.30 og lokar kl.16.30 alla skóla- og starfsdaga.


Ritstjórar vefsíðu eru skólastjórnendur.


Nemendur skólaárið 2025-2026 eru 9 og starfsmenn eru 7.


Skólastarfsemi


  • Skólastarfsemi

    Starfsemi skólans jókst til muna þegar félagsmiðstöð tók til starfa vorið 2025. Stefnt er að heildstæðum skóladegi 4 daga í viku á skólaárinu 2025-2026.


    Skólaakstur tengist lengdri viðveru í skóla.

  • Umsókn um leyfi fyrir nemendur

    Ef nemandi þarf leyfi í meira en tvo daga þurfa foreldrar að fylla út leyfisbréf.

  • Skólaakstur

    Skólabíll sækir fyrst á Hnappavelli og Fagurhólsmýri, þeir nemendur eru kominir í skólann um 08:30


    Nemendur frá Freysnesi eru komnir í skólann um 09:00


    Akstur seinnipartinn hefst 16:10 með akstri á Hnappavelli, Freysnesbörn ættu að leggja af stað úr skólanum um 16.30

Gildin okkar

Virðing Vinátta Metnaður

  • Virðing: einstaklingar eru ólíkir og lögð er áhersla á að allir séu metnir að verðleikum. Leitast er við að haga skólastarfinu í samræmi við þarfir og hæfileika hvers og eins.


  • Vinátta: lögð er áhersla á félagslega færni; kurteisi í samskiptum, umhyggju og samvinnu. Með glöðu og hlýlegu viðmóti líður öllum betur og afköst verða meiri.



  • Metnaður: áhersla er lögð á að allir geri sitt besta og setji markið hátt.