Nemendur

Skólaárið 2025-2026 eru sex nemendur í grunnskólanum í 1.-7. bekk og í leikskólanum Lambhaga eru þrjú börn. Skólinn er samrekinn leik- og grunnskóli.

Í gegnum tíðina hefur nemendafjöldi sveiflast, stundum koma fjölmennir árgangar og inn á milli koma ár þar sem enginn nemandi bætist í skólahópinn. Séu nemendalistar margra ára skoðaðir, kemur í ljós að oft hefur fjöldinn verið í kringum tíu og alltaf eru mismargir í hverjum árgangi.



Félagsmiðstöð

Sú nýbreytni var tekin upp í janúar 2025 að opnuð var félagsmiðstöð í Hofgarði í samráði við nemendur. Verkefnið var styrkt af Landlæknisembættinu sem liður í geðrækt nemenda. Undirbúningur og framkvæmd var unnin í nánu samtali við nemendur og reynt að virða óskir þeirra um form á starfinu í anda barnvæns samfélags og Barnasáttmála sameinuðu þjóðanna. Félagsmiðstöðin er opin mán-mið frá 14.00-16.30. Umsjónarmaður er Sunneva Helgadóttir.


Að auki verður reynt að bjóða upp á smiðjur á fimmtudögum frá 14.00-16.30 óski nemendur eftir því.

Bekkjafundir

Gert er ráð fyrir að umsjónarkennari haldi  bekkjarfundi reglulega þar sem rædd eru þau málefni sem snerta bekkinn og starfið innan hans.