Árleg ferð í Ingólfshöfða 22. maí 2026

Áróra Gústafsdóttir • May 30, 2026

Matthildur Þorsteinsdóttir var leiðsögumaður

Matthildur Þorsteinsdóttir gekk með nemendahópnum um svæðið. Við sáum lunda og mældum lundaholu með staf.
Matta sýndi okkur hvernig maður ber sig að við að veiða lunda í háf.
Við sáum líka skúm. Það er alltaf upplifun að koma út í Ingólfshöfða og sjá lundann að störfum, Matta lét okkur syngja fyrir lundann, hún sagði að hann væri svo forvitinn og myndi ganga á hljóðið.

Að sjálfsögðu voru einhverjir sem renndu niður sandbrekkuna, sem hafði hækkað töluvert síðan við vorum í höfðanum fyrir ári síðan.