Vorferð í Skaftafell

Áróra Gústafsdóttir • May 30, 2026

Gönguferð að Svarta fossi, Lambhagi og grill í skaftafelli

Ferðin hófst á því að ganga upp að Svarta fossi, allur skólinn með nemendur frá fyrsta upp í sjöunda bekk. Leikskóladrengir á aldrinum þriggja til sex ára létu sig ekki muna um að labba þetta upp á eigin spýtur. Eftir göngu að Svarta fossi var ferðinni haldið áfram í Lambhaga þar sem við hittum okkar ástkæru Beötu, eða Betty. Eftir að hafa nært okkur og leikið í Lambhaga var ferðinni heitið á leikvöllinn í Skaftafelli þar sem við grilluðum pylsur og lékum okkur fram að heimferð.

Mjög góður dagur!