Nemendur leikskólans Lambhaga og grunnskólans í Hofgarði tóku þátt í að plokka í dag. Afraksturinn var heldur betur glæsilegur. Nemendur höfðu fengið bingóspjöld svokallað plokk-bingó, það náði enginn að klára spjaldið en margir voru mjög nálægt því.
Það var hún Sandra á bókasafninu sem deildi með okkur plokkbingóspjaldinu.