Uppskeruhátíð nemenda 2026

Áróra Gústafsdóttir • April 17, 2026

Sýnishorn af verkum nemenda

TExtíl og smíði, verkefni nemenda

16. apríl 2026 var uppskeruhátíð nemenda í Leik- og grunnskólanum í Hofgarði.

Nemendur sýndu afrakstur starfsins í vetur.
Sophia og Lovísa hafa verið með tónmennt sameiginlega hjá leikskólanum og grunnskólanum þar sem kenndir eru leikir með takt og tónlist. Á uppskeruhátíðinni fluttu börnin lagið ,,Ég elska blómin" þar sem er bæði taktur og söngur með hreyfingum.

Eldri börnin í þriðja til sjöunda bekk spiluðu á píanó, en Sophia hefur kennt tónfræði og leiðbeint á píanó síðastliðna vetur.

Sunneva sem alla jafna stýrir félagsmiðstöð skólans tók að sér að leikstýra Ávaxtakörfunni. Leikritið var stytt og staðfært fyrir okkar litla hóp og tókst afar vel til. Sunneva og Áróra sáu um leikmynd og Áróra tók að sér búningahönnun.

Leikskóladrengir sýndu verk sem þeir hafa unnið með Lovísu og Söru í vetur, þeir eru búnir að læra flesta stafi og hafa unnið mikið með námsefnið Lubbi finnur málbein. Þeir bjuggu til dæmis til stafi úr trjágreinum sem hafa brotnað af í rokinu undanfarið og vöfðu með garni.

Að vanda var hlaðborð að hætti hússins fyrir gesti í lok sýningar í boði starfsmanna og foreldra.


Starfsmenn eru þakklátir fyrir góðar viðtökur og frábæra mætingu, það er gaman þegar svo margir sýna starfinu áhuga.